Fotbolti.net
28.06.19 - 16:35
Ívan Guðjón Baldursson

Antonio Valencia til LDU Quito (Staðfest)

Valencia og Diego Laxalt áttust við í Copa America.

Valencia og Diego Laxalt áttust við í Copa America.

Canon

Mynd: Getty Images

Antonio Valencia, fyrirliði Ekvador og Manchester United, er búinn að skrifa undir samning við LDU Quito í heimalandinu, Ekvador.
Valencia fer þangað á frjálsri sölu eftir að hafa nýlokið keppni með Ekvador á Copa America í Brasilíu. Ekvador endaði þar með eitt stig og komst ekki upp úr riðli.

Valencia verður 34 ára í ágúst og lék sem bakvörður í enska boltanum þó hann hafi byrjað ferilinn sem kantmaður. Hann skoraði 25 mörk í 339 leikjum yfir tíu ára tímabil.

LDU Quito vann efstu deild í fyrra en hefur farið illa af stað í ár og situr í sjöunda sæti af sextán. Liðið er með 22 stig eftir 15 umferðir og verður Valencia vafalítið frábær liðsstyrkur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.