28.06.19 - 08:40
Elvar Geir Magnússon
Camacho frá Liverpool til Sporting (Staðfest)

Rafael Camacho.

Mynd: Getty Images

Rafael Camacho.

Mynd: Getty Images
Rafael Camacho er kominn aftur heim í herbúðir Sporting Lissabon í Portúgal en hann fæddist í Lissabon og var í yngri flokkum félagsins áður en hann hélt til Englands.
Liverpool hefur tilkynnt að Sporting hafi keypt þennan 19 ára vængmann til baka en hann hafði neitað að skrifa undir framlengingu á samningi sínum á Anfield.
Camacho hafði áhyggjur af því að fá ekki spiltímann sem hann þarf á Anfield.

Milan, Wolves og Schalke sýndu Camacho áhuga en hann ákvað að snú aftur til Sporting. Kaupverðið er í kringum 5 milljónir punda en gæti hækkað upp í 7 milljónir.
Salan á Camacho er ekkert tengd Bruno Fernandes, miðjumanni Sporting sem orðaður hefur verið við Liverpool. Guardian greinir frá því að Liverpool sé ekki meðal félaga sem hafi áhuga á Fernandes.