Fotbolti.net
28.06.19 - 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Engin spurning að gefa Cloe tækifæri"

Cloe Lacasse.

Cloe Lacasse.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Nýjasti þátturinn af Heimavellinum kom inn á síðuna á miðvikudagskvöld. Smelltu hér til að hlusta á þáttinn.
Cloe Lacasse barst auðvitað í tal. Þessi öflugi framherji ÍBV var að fá íslenskan ríkisborgararétt og má byrja að spila með íslenska landsliðinu.

Hún er Kanadísk en hefur leikið hér á landi með ÍBV síðan sumarið 2015. Hún lék hjá ÍBV undir stjórn Ian Jeffs sem hætti með liðið í haust og varð aðstoðarmaður Jóns Þórs Haukssonar með íslenska landsliðið.

Cloe hefur leikið með ÍBV síðustu fimm tímabil og skorað 59 mörk í 86 leikjum.

„Ég myndi ekki einu sinni hugsa mig um það. Ef ég væri Jón Þór þá hefði ég verið heima hjá mér að skála þegar þetta kom upp," sagði Aníta Lísa Svansdóttir, sem var gestur Heimavallarins ásamt Báru Kristbjörgu Rúnarsdóttur.

„Sóknarstaðan er búin að vera opin síðastliðið ár, tvö ár - eftir að Harpa dettur út líka. Margrét Lára er að koma til baka núna. Það hefur engin náð að eigna sér sóknarmannsstöðuna. Berglind Björg er búin að spila 41 leik og skora fjögur mörk í A-landsliðinu. Það er ekki nóg fyrir framherja. Ég myndi 100% taka Cloe inn í liðið og gefa henni tækifæri," sagði Bára.

Aníta: „Ég er mjög ánægð með Elínu Mettu og sæi jafnvel Cloe fyrir mér á vægnum í landsliðinu."

Bára: Eða Elín Metta fyrir aftan og Cloe frammi. Ég myndi bara 100% taka hana. Hún myndi gefa liðinu aðra vídd. Hún er líka með góðan leikskilning og það er margt sem hún hefur. Hún er með markanef, nokkur ár hefur hún sýnt mikinn stöðugleika í markaskorun."

Aníta: Vonandi er hún púsluspilið sem hefur vantað í framlínuna.

Bára: Auðvitað þarf hún að sanna sig þarna eins og allir aðrir, en mér finnst engin spurning að gefa henni tækifæri."

Í lok þáttarins stilltu bæði Bára og Aníta upp besta mögulega byrjunarliði Íslands í dag. Smelltu hér til að hlusta á þá umræðu.

Cloe er að verða 26 ára í júlí og á því nóg eftir á fótboltaferli sínum.

Sjá einnig:
Cloé Lacasse komin með íslenskan ríkisborgararétt (Staðfest)
Álitsgjafar svara - Á Cloé heima í íslenska landsliðinu?
Jón Þór: Cloe kemur að sjálfsögðu til greina í landsliðið
Hún má byrja að spila með íslenska landsliðinu.

Hún má byrja að spila með íslenska landsliðinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.