Fotbolti.net
28.06.19 - 18:00
Ívan Guðjón Baldursson

Heurelho Gomes framlengir við Watford (Staðfest)

Heurelho Gomes framlengir við Watford (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíski markvörðurinn Heurelho Gomes er búinn að framlengja samning sinn við Watford um eitt ár.
Þetta kemur á óvart því Gomes sagðist vera 99% viss um að ætla að leggja hanskana á hilluna í sumar. Hann ætlaði að halda aftur heim til Brasilíu til að gerast prestur eftir að hafa fengið skilaboð frá Guði, að eigin sögn. Hann talaði einnig um að gerast umboðsmaður í heimalandinu.

Gomes er 38 ára gamall og hefur verið hjá Watford síðustu fimm ár. Hann missti byrjunarliðssæti sitt fyrir einu og hálfu ári og hefur síðan þá aðeins spilað bikarleiki. Watford komst alla leið í úrslit FA bikarsins í ár en þar fékk Gomes sex mörk á sig í tapi gegn stjörnum prýddu liði Manchester City.






Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.