28.06.19 - 12:35
Elvar Geir Magnússon
Martin O'Neill rekinn frá Forest (Staðfest)

Martin O'Neill.

Mynd: Getty Images

Martin O'Neill.

Mynd: Getty Images
Nottingham Forest hefur rekið Martin O'Neill úr stjórastólnum. Þessi Norður-Íri entist aðeins fimm mánuði í starfi.
Hann var ráðinn eftir að Aitor Karanka lét af störfum.
O'Neill var leikmaður Forest á sínum tíma og vann þar Evrópumeistaratitil og lék 371 leik.

Roy Keane var aðstoðarmaður O'Neill en hann lét af störfum hjá félaginu í síðustu viku.
Enskir fjölmiðlar segja að lykilmenn í Forest hafi snerist gegn O'Neill og stjórn liðsins hafi ekki séð aðra leið en að láta hann fara.
Forest, sem endaði í 9. sæti í Championship-deildinni, er nú í leit að sínum tólfta stjóra síðan í júní 2011.
Frakkinn Sabri Lamouchi, fyrrum þjálfari Rennes og Fílabeinsstrandarinnar, er talinn líklegastur í stjórastól Forest.