Fotbolti.net
28.06.19 - 19:00
Ívan Guðjón Baldursson

PSV borgar metfé fyrir Bruma (Staðfest) - Afellay kemur frítt

PSV borgar metfé fyrir Bruma (Staðfest) - Afellay kemur frítt
Canon

Mynd: Getty Images

PSV Eindhoven er búið að staðfesta kaupin á Armindo Bruma, kantmanni RB Leipzig og portúgalska landsliðsins.
PSV borgar metfé fyrir Bruma eða 15 milljónir evra og skrifar hann undir fimm ára samning við hollenska félagið.

Bruma spilaði 67 leiki fyrir Leipzig. Hann skoraði í þeim tíu mörk og lagði fimm upp. Hann hefur áður spilað fyrir Sporting CP, Galatasaray og Real Sociedad auk þess að eiga sjö A-landsleiki að baki fyrir Portúgal.

Hann verður 25 ára í nóvember og þótti gífurlegt efni á sínum tíma. Hann lék 78 leiki fyrir yngri landslið Portúgal.

Bruma er þriðji leikmaðurinn sem gengur í raðir PSV í sumar eftir komu Ibrahim Afellay og Robbin Ruiter. Báðir koma þeir frítt frá Stoke og Sunderland.

Afellay hóf ferilinn hjá PSV og lék 217 leiki fyrir félagið áður en hann var keyptur til Barcelona. Þar átti hann erfitt uppdráttar og hefur síðan spilað fyrir Schalke, Olympiakos og síðast Stoke, þar sem hann var leystur undan samningi fyrr í sumar.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.