28.06.19 - 16:21
Arnar Daði Arnarsson
Ryan Babel til Galatasaray (Staðfest)

Ryan Babel er farinn aftur til Tyrklands.

Mynd: Getty Images

Ryan Babel er farinn aftur til Tyrklands.

Mynd: Getty Images
Hollendingurinn, Ryan Babel hefur skrifað undir samning hjá tyrkneska úrvalsdeildarfélaginu, Galatasaray. Babel skrifaði undir þriggja ára samning við félagið.
Babel kemur á frjálsri sölu til félagsins en hann lék með Fulham á síðustu leiktíð í ensku úrvalsdeildinni, en félagið féll úr deildinni og því gat hann yfirgefið félagið frítt.
Áður en Ryan Babel gekk í raðir Fulham lék hann með Besiktas í Tyrklandi.
Ryan Babel lék með Liverpool tímabilin 2007 til 2011 en eftir það hefur hann verið á faraldsfæti. Hann hefur meðal annars leikið í Þýskalandi, Hollandi, Dúbai og á Spáni.

👀 @Ryanbabel spotted in Istanbul airport. ✈️ 🇹🇷
— 433 (@official433) June 27, 2019
🎥 @1905GSFANS pic.twitter.com/RDkf7cFqPI
Ryan Babel has a new team! https://t.co/DQ1PJWUWnC pic.twitter.com/GOY7q6hUQ2
— Mirror Football (@MirrorFootball) June 28, 2019