Jordan Chase Tyler er búinn að semja við Víði Garði út tímabilið. Jordan er fæddur 1992 og hefur leikið fyrir KF, Hött og Þrótt Vogum hér á landi.
Hann lék síðast fyrir Þrótt en meiddist illa um vorið 2019 og er að koma sér aftur í gang rúmu ári síðar.
Jordan er sóknarsinnaður miðjumaður sem getur einnig leikið í framlínunni.
Hann hefur gert 16 mörk í 61 leik í 2. deild karla og er fenginn til að hjálpa Víði sem er aðeins með sex stig eftir átta umferðir.
Markaskorun Víðis hefur verið skelfileg og er liðið með markatöluna 4-23. Jordan á að hjálpa til við að laga hana.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir