Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 28. júlí 2021 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Austin segir Man Utd að kaupa Trippier því Wan-Bissaka geti ekki varist
Aaron Wan-Bissaka
Aaron Wan-Bissaka
Mynd: Getty Images
QPR mætti Manchester United í æfingaleik á dögunum, QPR vann leikinn 4-2 og var frammistaða Man Utd ekki upp á marga fiska. United stillti ekki upp sínu sterkasta liði þar sem margir leikmenn eru í fríi eftir EM og einhverjir glíma við meiðsli.

Charlie Austin spilaði með QPR og skoraði jöfnunarmark liðsins eftir að Jesse Lingard kom United yfir.

Austin ræddi við talkSPORT og tjáði sig um lið Manchester United. „Þrátt fyrir að United hafi keypt Varane þá er þeirra stærsta vandamál að þeir þurfa hægri bakvörð," sagði Austin.

„Aaron Wan-Bissaka er ekki nægilega góður. Við spiluðum við þá á dögunum og ég veit að þetta var bara undirbúningsleikur en þeir þurfa að leggja allt í sölurnar til að fá Kieran Trippier."

„Hann er sá leikmaður sem þeir þurfa. Aaron Wan-Bissaka getur ekki varist. Ofan á það eru sendingar hans á sóknarhelmingi liðsins ekki þær sem framherjarnir vilja. Þeir þurfa að kaupa Trippier."


Trippier hefur verið orðaður við Manchester United í sumar. Wan-Bissaka hefur spilað tvö tímabil á Old Trafford og hefur hann verið fastamaður í byrjunarliðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner