Fotbolti.net
28.08.20 - 18:19
Ívan Guðjón Baldursson

Arnar Már kominn aftur til ÍA (Staðfest)

Arnar Már kominn aftur til ÍA (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Már Guðjónsson, fyrrum fyrirliði ÍA, er allur að koma til eftir að hafa slitið krossband á síðasta keppnistímabili.
Arnar Már er 33 ára og hefur spilað yfir 200 leiki fyrir ÍA á ferlinum, auk 46 leikja fyrir KA.

Hann spilaði 13 leiki áður en hann meiddist síðasta sumar en í kjölfarið var hann lánaður til Kára.

Arnar þótti ekki nógu heill til að spila fyrir Kára en samkvæmt félagaskiptasíðu KSÍ er hann kominn aftur úr láni.

Skagamenn sigla lygnan sjó í neðri hluta Pepsi Max-deildar karla um þessar mundir, með 14 stig eftir 11 umferðir.

Árni Snær Ólafsson er orðinn fyrirliði Skagamanna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.