Fotbolti.net
28.08.20 - 09:30
Magnús Már Einarsson

Eze til Crystal Palace (Staðfest)

Eze til Crystal Palace (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Crystal Palace hefur keypt miðjumanninn Eberechi Eze frá QPR á sextán milljónir punda.

Fjórar milljónir punda gætu bæst við síðar í bónusgreiðslum. QPR fær einnig 20% af næstu sölu.

Eze skoraði 14 mörk í 46 leikjum í Championship deildinni með QPR á síðasta tímabili.

Fulham, West Ham og Newcastle voru líka á höttunum eftir honum en Crystal Palace vann kapphlaupið.
Hinn 22 ára gamli Eze skrifaði undir fimm ára samning hjá Crystal Palace.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.