28.08.20 - 20:30
Ívan Guðjón Baldursson
Leeds stelur hinum efnilega Greenwood af Arsenal (Staðfest)

Greenwood var orðaður við Juventus og Milan í fyrra.

Mynd: Getty Images

Búið er að staðfesta félagaskipti Sam Greenwood úr Arsenal til Leeds.
Greenwood er 18 ára gamall og þykir gífurlega mikið efni. Hann spilaði fimm leiki með U23 liði Arsenal á síðustu leiktíð og hefur hann verið að raða inn mörkum með U17 landsliði Englendinga. Hann er með 12 mörk í 14 leikjum þar og er núna að berjast um sæti í U19 liðinu.
„Þetta er fullkomin tímasetning til að ganga í raðir Leeds, þetta félag er fullkomið fyrir unga leikmenn sem þrá tækifæri. Ég get ekki beðið eftir að byrja," sagði Greenwood eftir félagaskiptin.
„Ég vil þakka Arsenal fyrir veittan stuðning síðustu tvö ár. Það hefur verið sannur heiður að spila fyrir félagið."
Greenwood er fimmti ungi leikmaðurinn sem Marcelo Bielsa og samstarfsmenn hans fá til Leeds í sumar, eftir Charlie Allen, Cody Drameh, Joe Gelhardt og Dani van den Heuvel.
Arsenal getur fengið allt að 3 milljónum punda í vasann fyrir Greenwood.