28.08.20 - 18:40
Ívan Guðjón Baldursson
Mooy seldur til Kína (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ástralski miðjumaðurinn Aaron Mooy er genginn í raðir Shanghai SIPG í Kína eftir eitt ár hjá Brighton.
Mooy, sem verður þrítugur í september, var mikilvægur hlekkur í liði Brighton og spilaði 31 leik á úrvalsdeildartímabilinu.
Mooy var fenginn til Manchester City sumarið 2016 en fékk aldrei tækifæri með aðalliðinu. Hann var lykilmaður hjá Huddersfield áður en Brighton fékk hann lánaðan í fyrra og festi svo kaup á honum í janúar.
Mooy skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning við Brighton í janúar en kaupverðið sem Shanghai greiddi fyrir hann er óuppgefið.
Shanghai er á toppi síns riðils í kínversku Ofurdeildinni, þremur stigum fyrir ofan Beijing Guoan. Shanghai er með gífurlega sterkt lið þar sem Brasilíumennirnir Oscar og Hulk eru á mála hjá félaginu auk Marko Arnautovic.
Vitor Pereira, fyrrum þjálfari Porto, Olympiakos og Fenerbahce, er við stjórnvölinn.
Mooy á 96 leiki að baki í ensku úrvalsdeildinni og 43 landsleiki fyrir Ástralíu.