28.08.20 - 10:41
Magnús Már Einarsson
Thiago Silva til Chelsea (Staðfest)

Mynd: Chelsea

Mynd: Chelsea
Chelesa hefur fengið varnarmanninn öfluga Thiago Silva í sína raði fyrir komandi tímabil.
Brasilíumaðurinn kemur frítt frá PSG en samningur hans þar rann út á dögunum.
Hinn 35 ára gamli Silva skrifaði undir eins árs samning hjá Chelsea en hann á að hjálpa til við að bæta varnarleikinn sem var til vandræða á síðasta tímabili.

Silva hefur leikið með PSG síðan árið 2012 en hann var áður á mála hjá AC Milan.
Frank Lampard, stjóri Chelsea, er með veskið á lofti en Silva er sjötti leikmaðurinn sem Chelsea fær í sumar á eftir Malang Sarr, Timo Werner, Hakim Ziyech, Ben Chilwell og Xavier Mbuyamba.