Fotbolti.net
28.08.20 - 22:03
Ívan Guðjón Baldursson

Þróttur R. fær Sölva Björnsson frá Gróttu (Staðfest)

Þróttur R. fær Sölva Björnsson frá Gróttu (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Lengjudeildin
Þróttur R. er í botnbaráttu Lengjudeildarinnar og hefur fengið Sölva Björnsson að láni frá Gróttu út tímabilið.
Sölvi á að hjálpa Þrótturum með markaskorun en þeir eru aðeins komnir með níu mörk í ellefu leikjum og eru þremur stigum frá öruggu sæti.

Sölvi er fæddur 1999 og skoraði 7 mörk í 16 leikjum með Gróttu í fyrra en hefur aðeins komið við sögu í einum leik í ár.

Hann er fjölhæfur framherji þar sem hann getur spilað bæði sem sóknarmaður og kantmaður.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.