28.08.20 - 17:30
Magnús Már Einarsson
Tindastóll fær miðvörð og markvörð (Staðfest)

Hlynur Örn Hlöðversson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hlynur Örn Hlöðversson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tindastóll hefur fengið markvörðinn Hlyn Örn Hlöðversson í sínar raðir fyrir komandi átök í 3. deildinni.
Hlynur Örn spilaði einn leik með Breiðabliki í Pepsi Max-deildinni í fyrra en síðari hluta sumars spilaði hann tólf leiki með Fram.
Hlynur þekkir til hjá Tindastóli því hann lék með liðinu í 2. deildinni árið 2015.
Tindastóll hefur einnig fengið skoska miðvörðinn Hamish Robert Thomson í sínar raðir.
Hamish er fæddur árið 1998 en hann er kominn með leikheimild með Tindastóli.

Tindastóll hefur tapað síðustu tveimur leikjum en liðið er í 5. sæti í 3. deildinni, átta stigum frá 2. sætinu.