28.08.20 - 10:07
Magnús Már Einarsson
Viðar Örn til Valerenga (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viðar Örn Kjartansson skrifaði nú rétt í þessu undir þriggja ára samning hjá Valerenga í Noregi.
Viðar er í miklum metum hjá stuðningsmönnum Valerenga en hann varð markakóngur í norsku úrvalsdeildinni árið 2014 þegar hann skoraði 25 mörk í 29 leikjum með liðinu.
Hinn þrítugi Viðar hefur verið í samningaviðræðum við nokkur félög eftir að hann yfirgaf Yeni Malatyaspor á dögunum.

„Það var áhugi frá Svíþjóð, Danmörku og fleiri löndum. Hann á frábærar minningar frá bæði Svíþjóð og Noregi en Noregur varð ofan á," sagði Ólafur Garðarsson, umboðsmaður Viðars.
Viðar hefur spilað í Kína, Sviþjóð, Ísrael, Rússlandi og Tyrklandi síðan hann fór frá Valerenga á sínum tíma.
Viðar hefur spilað í Kína, Sviþjóð, Ísrael, Rússlandi og Tyrklandi síðan hann fór frá Valerenga á sínum tíma.
THE EAGLE HAS LANDED #Z 🦅
— Vålerenga Fotball (@ValerengaOslo) August 28, 2020
📸 https://t.co/uAnjmTq6gq pic.twitter.com/G8wWDi2RIH

Mynd: Jørn H. Skjærpe/Dagsavisen