Fotbolti.net
28.09.13 - 16:16
Hafliði Breiðfjörð

Þorvaldur Örlygsson hættur með ÍA (Staðfest)

Þorvaldur Örlygsson hættur með ÍA (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorvaldur Örlygsson er hættur þjálfun ÍA en þetta staðfesti hann við Fótbolta.net eftir leikinn gegn Fylki í Pepsi-deildinni í dag.
ÍA tapaði fyrir Fylki 1-3 í lokaumferðinni í dag en liðið var þegar fallið niður í 1. deildina með aðeins 11 stig.

Þorvaldur tók við liðiu 19. júní eftir að Þórður Þórðarson hætti óvænt með liðið nokkrum dögum áður en á svipuðum tíma hafði Þorvaldur hætt með Fram.

Hann sagði við Fótbolta.net í dag að hann hafi átt samtal við stjórn ÍA á dögunum og komist að samkomulagi um að hætta með liðið eftir tímabilið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.