Fotbolti.net
28.09.15 - 09:23
Magnús Már Einarsson

Lee Carsley tekur við Brentford (Staðfest)

Lee Carsley.

Lee Carsley.

Canon

Mynd: Getty Images

Brentford hefur rekið Marinus Dijkhuizen og ráðið Lee Carlsey sem stjóra í hans stað.

Dijkhuizen tók við Brentford af Mark Warburton í sumar en sú ákvörðun þótti umdeild.

Warburton hafið komið Brentford upp í Championship deildina þar sem það var í toppbaráttunni á síðasta tímabili.
Byrjunin á þessu tímabili hefur verið slæm en Brentord er í 19. sæti deildarinnar í dag og því hefur Dijkhuizen verið rekinn.

Carsley hefur þjálfað unglingalið Brentford undanfarið en hann spilaði á sínum tíma með Everton og Coventry.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.