Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 28. september 2022 20:51
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Telur að Liverpool eigi ekki möguleika á Meistaradeildarsæti
Bacary Sagna
Bacary Sagna
Mynd: Getty Images

Liverpool mun ekki ná Meistaradeildarsæti á þessari leiktíð að mati Bacary Sagna fyrrum leikmanni Arsenal og Manchester City.


Liverpool er í 8. sæti deildarinnar og hefur gert þrjú jafntefli og tapað einum leik. Sagna telur það bara of mikið nú þegar.

„Ég held að Liverpool sé liðið sem muni detta úr topp fjórum á þessari leiktíð miðað við fyrstu sjö leikina því þeir hafa tapað alltof mörgum stigum nú þegar," sagði Sagna.

„Þeir eru 9 stigum á eftir Arsenal og það hefur áhrif á hausinn, það er erfitt að minnka bilið á meðan liðið fyrir ofan vinna og vinna. Þetta verður prófraun fyrir leikmennina og eitthvað nýtt fyrir flesta af þeim,"

Chelsea mun hafa betur í baráttunni við Liverpool ef spá Sagna gengur eftir.

„Arsenal, Tottenham og Manchester City verða klárlega í topp fjórum, þá er bara eitt sæti eftir og það verður slagur milli Liverpool og Chelsea."

Hann telur að Liverpool þurfi að komast á gott skrið fyrir HM og vera í námunda við fjórðasætið áður en HM hefst til að eiga einhverja möguleika.


Athugasemdir
banner
banner