Fotbolti.net
28.10.15 - 19:30
Arnar Geir Halldórsson
Ítalska deildin

Donadoni tekinn við Bologna (Staðfest)

Roberto Donadoni

Roberto Donadoni

Canon

Mynd: Getty Images

Roberto Donadoni hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri ítalska úrvalsdeildarliðsins Bologna.
Donadoni tekur við af Delio Rossi sem var látinn taka poka sinn eftir 1-0 tap á heimavelli gegn Inter í gær.

Donadoni verður þriðji þjálfari Bologna á árinu en Rossi tók við liðinu síðastliðið vor.

Bologna er í 18.sæti Serie A og hefur aðeins unnið tvo af fyrstu tíu leikjum sínum en liðið er nýliði í deildinni eftir að hafa unnið umspil í Serie B í fyrra.

Donadoni gerði garðinn frægan með AC Milan og ítalska landsliðinu á leikmannaferli sínum en hann hefur farið víða á þjálfaraferli sínum og stýrði meðal annars ítalska landsliðinu á árunum 2006-2008.

Nú síðast stýrði hann liði Parma áður en félagið varð gjaldþrota.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.