Fotbolti.net
28.10.21 - 19:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Hollywood stjörnurnar ætla koma Wrexham upp í Úrvalsdeild

Ryan Reynolds

Ryan Reynolds

Canon

Mynd: Chelsea

Ryan Reynolds og Rob McElhenney Hollywood leikarar og eigendur Wrexham eru með háleit markmið.
Reynolds og McElhenney eru í heimsókn í fyrsta sinn hjá félaginu síðan þeir keyptu það í febrúar á þessu ári.

Wrexham er í fimmtu efstu deild Englands en hún telst sem hálf atvinnumanna deild. Þeir félagar hafa gefið það út að draumurinn sé að koma liðinu í Úrvalsdeildina.

„Það hefur enginn komist úr deildinni okkar í Úrvalsdeildina en einhver lið hafa komist úr þessari deild í Championship," sagði McElhenney.

„Við ætlum að reyna komast ofar. Kannski er ég barnalegur en ég spurði yfirmann knattspyrnumála hjá okkur hvort það væri ekki möguleiki. Hann hló og sagði: Jú, en það mun aldrei gerast."

„Ef maður hugsar ekki svona þá nær maður því ekki, svo af hverju ekki?" bætti Ryan Reynolds við.

Sjá einnig:
Ryan Reynolds og Rob McElhenney kaupa Wrexham (Staðfest)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.