28.10.21 - 23:44
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Jordan Damak til Þórs (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þór hefur samið við Jordan Damachoua sem oftast er kallaður Jordan Damak en hann kemur frá franska liðinu Châteauneuf-sur-Loire sem er í fimmtu efstu deild þar í landi. Þetta var tilkynnt á Kótelettukvöldi Þórs í kvöld.
Hann kannast við sig hér á landi en hann kom hingað fyrst árið 2018 er hann lék með KF. Þaðan fór hann til Kórdrengja árið 2020. Hann hefur leikið 53 leiki og skorað 12 mörk á Íslandi.
Hann er að klára tímabilið í Frakklandi en hann er væntanlegur til landsins í janúar á næsta ári.
Damak er fyrsti leikmaðurinn sem Þorlákur Árnason nælir í eftir að hann tók við þjálfun liðsins í síðasta mánuði en Orri Freyr Hjaltalín hætti með liðið undir lok síðasta tímabils.

Heimild: Kaffið.is