Fotbolti.net
28.10.21 - 16:27
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ítalska deildin

Lautaro Martínez framlengir við Inter (Staðfest)

Lautaro Martínez framlengir við Inter (Staðfest)
Canon

Mynd: Inter

Lautaro Martinez skrifaði undir nýjan fimm ára samning við Inter í dag. Mikið hefur verið rætt og ritað um framtíð Lautaro að undanförnu en önnur stórlið hafa sýnt argentínska framherjanum áhuga.

Lautaro er fæddur árið 1997 og er nú samningsbundinn fram á sumarið 2026. Arsenal, Tottenham og Atletico Madrid eru sögð hafa boðið í Lautaro í sumar.
Lautaro skoraði sautján mörk þegar Inter varð ítalskur meistari í fyrra. Í upphafi tímabilsins í ár hefur hann skorað fimm mörk í níu leikjum.

Hann er uppalinn hjá Liniers og Racing í Argentínu og kom til Inter frá Racing árið 2018. 109 deildarleikjum síðar hefur hann skorað 42 mörk.

Hann á að baki 33 landsleiki fyrir Argentínu og skorað í þeim sautján mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.