Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 28. október 2022 20:32
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Fullkrug aftur hetjan í Bremen
Mynd: Getty Images

Werder Bremen 1 - 0 Hertha Berlin
1-0 Niclas Füllkrug


Werder Bremen og Hertha Berlin mættust í eina leik kvöldsins og fyrsta leik helgarinnar í þýska boltanum.

Fjögur stig skildu liðin að um miðja deild fyrir viðureignina og var staðan markalaus eftir nokkuð bragðdaufan fyrri hálfleik þar sem heimamenn í Bremen fengu þó fleiri færi.

Síðari hálfleikur var ekki líflegri en sá fyrri þar til á lokamínútunum þegar Niclas Füllkrug gerði frábærlega að skora með skalla úr erfiðu færi. 

Gestirnir frá Berlín lögðu þá allt í sóknarleikinn en boltinn rataði ekki í netið og lokatölur 1-0.

Bremen er í sjötta sæti, með 18 stig eftir 12 umferðir. Hertha er aftur á móti aðeins með 11 stig.

Fullkrug er kominn með 8 mörk og tvær stoðsendingar í 11 deildarleikjum.


Athugasemdir
banner
banner