Fotbolti.net
28.10.26 - 17:40
Elvar Geir Magnússon

Sigurður Arnar í Val (Staðfest)

Sigurður Arnar er hugsaður sem lykilmaður í vörn Vals.

Sigurður Arnar er hugsaður sem lykilmaður í vörn Vals.

Canon

Mynd: Valur

Miðvörðurinn Sigurður Arnar Magnússon er formlega genginn í raðir Vals en hann kemur frá ÍBV og skrifar undir samning út tímabilið 2029.

Þessi 27 ára varnarmaður kemur til Vals á frjálsri sölu en samningur hans rennur út um miðjan næsta mánuð.

„Sigurður Arnar er flottur karakter, gríðarlega duglegur og vinnusamur. Hann kemur með mikla reynslu inn í hópinn og er hugsaður sem lykilmaður í vörn Vals næstu árin," segir í tilkynningu Vals en hana má sjá í heild hér fyrir neðan.

Halldór Árnason tekur við Valsliðinu eftir vonbrigðatímabil en liðið hafnaði í áttunda sæti Bestu deildarinnar.
Sigurður Arnar yfirgefur ÍBV og flytur í bæinn
TENGT EFNI

Sigurður Arnar yfirgefur ÍBV og flytur í bæinn

Tilkynning Vals:
Knattspyrnudeild Vals hefur gert þriggja ára samning við miðvörðinn Sigurð Arnar Magnússon og gildir hann út tímabilið 2029.

Sigurður Arnar, sem fæddur er árið 1999, er uppalinn Eyjamaður og hefur leikið allan sinn feril með ÍBV. Sigurður lék sinn fyrsta leik í efstu deild einmitt gegn Val árið 2016 og á að baki 234 leiki í meistaraflokki, auk þess sem hann hefur leikið Evrópuleiki og fyrir U21 landslið Íslands.

Sigurður Arnar er flottur karakter, gríðarlega duglegur og vinnusamur. Hann kemur með mikla reynslu inn í hópinn og er hugsaður sem lykilmaður í vörn Vals næstu árin. Það er mikill fengur fyrir félagið að fá hann til liðs við okkur. Knattspyrnudeild Vals býður Sigurð Arnar hjartanlega velkominn á Hlíðarenda.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.