Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 28. nóvember 2020 21:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bikarævintýri hjá Chorley - Leikmennirnir sungu lag eftir Adele
Mynd: Getty Images
Chorley er komið áfram í þriðju umferð enska FA-bikarsins í fyrsta sinn í sögunni.

Chorley, sem leikur í sjöttu efstu deild (National League North), hafði betur gegn Peterborough í dag, 2-1. Peterborough er í þriðju efstu deild og því var þetta mjög óvæntur sigur.

Ensku úrvalsdeildarfélögin koma inn í bikarinn í þriðju umferð. Chorley gæti því mætt Manchester United eða Liverpool í næstu umferð keppninnar.

Það var auðvitað vel fagnað inn í búningsklefa Chorley eftir leik. Leikmennirnir tóku af einhverri ástæðu lag eftir bresku söngkonuna Adele, lagið Someone Like You. Þetta virðist vera orðin hefð því leikmennirnir tóku einnig sama lag eftir annan óvæntan sigur í 2. umferð keppninnar gegn Wigan.



Athugasemdir
banner
banner