Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   lau 28. nóvember 2020 17:50
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mahrez: Sigurinn mikilvægari en þrennan
Mynd: Getty Images
Riyad Mahrez skoraði þrennu þegar Manchester City burstaði Burnley í ensku úrvalsdeildinni í dag.

„Við erum ánægðir með að skora fullt af mörkum og skapa fullt af færum. Við fáum þrjú stig og núna höldum við áfram," sagði Mahrez við Match of the Day.

Mahrez var hógvær í svörum sínum þegar hann var spurður út í mörkin sem hann skoraði.

„Það er alltaf gaman að skora mörk og ég er mjög ánægður, en það mikilvægasta var að vinna leikinn og skapa færi. Síðasta markið er líklega það sem mér fannst best því ég skora ekki mörg mörk með höfðinu."

„Við verðum að taka þetta leik fyrir leik. Við eigum erfiðan leik framundan gegn Porto um fyrsta sætið í riðlinum í Meistaradeildinni. Það er leikur sem við ætlum að reyna að vinna."
Athugasemdir
banner
banner