Fotbolti.net
28.11.26 - 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

„Þá sé ég ekki mörg lið sem munu stöðva okkur"

„Þá sé ég ekki mörg lið sem munu stöðva okkur"
Canon

Mynd: EPA

Nottingham Forest vann sterkan sigur á Chelsea í gær en þetta var aðeins annar heimasigur liðsins á tímabilinu. Hinn var gegn Man City í þar síðustu umferð.
Morgan Gibbs-White skoraði tvennu í 3-2 sigri í gær og hann er bjartsýnn á framhaldið.

„Við höfum þetta hungur og þessa löngun og við þurfum að sýna það stöðugt núna. Ef við getum gert það, þá sé ég ekki mörg lið sem munu stöðva okkur," sagði Gibbs-White.

„City Ground er erfiður staður að koma á og sérstaklega þegar við sýnum þessa ákefð og pressu. Við sýndum það í fyrri hálfleik."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.