28.12.13 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Belgískur stjórnmálamaður nýr eigandi Charlton (Staðfest)

Stuðningsmenn Standard Liege mótmæltu Duchatelet af miklum krafti en eru hættir því öllu í bili.

Mynd: Getty Images

Charlton er enn eitt enska félagið sem fellur í eigu erlendra manna og er belgíski stjórnmálamaðurinn Roland Duchatelet nýr eigandi félagsins.
Duchatelet er einnig kaupmaður og koma auðæfi hans útfrá fyrirtækjum sem hann stofnaði í rafeindatæknigeiranum.

Belginn borgar aðeins 14 milljónir punda til að taka yfir félagið sem er í sjötta-neðsta sæti Championship deildarinnar.
Duchatelet er eigandi Standard Liege í Belgíu og stofnandi stjórnmálahreyfingar þar í landi.
Hann keypti Standard Liege fyrir 35 milljónir punda 2011 og fékk stuðningsmenn félagsins snemma á móti sér með því að selja bestu mennina.
Síðasta sumar réði Duchatelet óþekktan 38 ára gamlan ísraelskan þjálfara, Guy Luzon, og síðan þá hefur allt gengið vel og er liðið á toppnum í Belgíu.

Heimild: Daily Mail