Fotbolti.net
28.12.13 - 12:55
Hafliði Breiðfjörð

Dagný Brynjarsdóttir í Selfoss (Staðfest)

Dagný komin í búning Selfoss í dag.

Dagný komin í búning Selfoss í dag.

Canon

Mynd: sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Kvennaboltinn
Dagný Brynjarsdóttir er gengin í raðir Selfoss frá Val en þetta kom fram á Sunnlenska.is í hádeginu. Dagný sem á fast sæti í íslenska landsliðinu er frá Hellu og snýr því aftur á suðurlandið.
,,„Það töluðu mörg lið við mig en mér fannst þetta mest spennandi kosturinn. Ég held að ég geti bætt mig sem leikmaður hérna og hjálpað ungu liði með reynslu minni,\" segir Dagný í viðtali við Sunnlenska.is en þar er rætt ítarlega við hana um félagaskiptin.

Smelltu hér til að sjá viðtalið.

Dagný hefur verið lykilmaður í íslenska landsliðinu síðustu misseri en hún hefur leikið með Val frá árinu 2007 og yfir vetrartímann með Florida State Seminoles í bandaríska háskólaboltanum.

Þar hefur hún náð frábærum árangri en lið FSU komst í úrslitaleik efstu deildar háskólafótboltans í desember og átti Dagný stóran þátt í gengi liðsins. Í vetur var hún meðal annars valin í úrvalslið Atlantshafsdeildarinnar og er í hópi 31 leikmanns sem samtök knattspyrnuþjálfara í Bandaríkjunum hafa tilnefnt í kjöri um besta leikmann bandaríska háskólaboltans.

Dagný er 22 ára gamall miðjumaður, uppalin hjá KFR en hún lék sína fyrstu meistaraflokksleiki fyrir KFR/Ægi árið 2006, fimmtán ára gömul og gekk árið eftir í raðir Vals þar sem hún hefur fjórum sinnum orðið Íslandsmeistari.

Nítján ára lék hún sinn fyrsta landsleik og hefur síðan leikið 36 A-landsleiki auk 27 landsleikja fyrir yngri landslið Íslands.

Heimild: Sunnlenska.is (1) | Sunnlenska.is (2)

Dagný með Gunnari Borgþórssyni þjálfara Selfoss. Hann þjálfaði hana áður hjá Val.

Dagný með Gunnari Borgþórssyni þjálfara Selfoss. Hann þjálfaði hana áður hjá Val.

Canon

Mynd: sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Dagný og Gunnar ásamt Jóhanni Bjarnasyni, aðstoðarþjálfara og Svövu Svavarsdóttur og Torfa Ragnari Sigurðssyni úr meistaraflokksráði kvenna.

Dagný og Gunnar ásamt Jóhanni Bjarnasyni, aðstoðarþjálfara og Svövu Svavarsdóttur og Torfa Ragnari Sigurðssyni úr meistaraflokksráði kvenna.

Canon

Mynd: sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.