Fotbolti.net
28.12.15 - 08:00
Alexander Freyr Tamimi

Jokanovic ráðinn þjálfari Fulham (Staðfest)

Slavisa Jokanovic stýrði áður Watford.

Slavisa Jokanovic stýrði áður Watford.

Canon

Mynd: Getty Images

Fulham hefur staðfest að Slavisa Jokanovic sé nýr knattspyrnustjóri liðsins. Hann var ráðinn 49 dögum eftir að Kit Symons var rekinn frá félaginu.
Þessi 47 ára gamli Serbi yfirgefur starf sitt hjá Maccabi Tel Aviv, sem er á toppi ísraelsku úrvalsdeildarinnar og tapaði öllum sex leikjum sínum í Meistaradeildinni.

Jokanovic tók við ísraelsku meisturunum eftir að hafa komið Watford upp í úrvalsdeildina á síðasta tímabili, en hann tók við þeim síðarnefndu á stuttum samningi og náði ekki að semja við liðið um að halda áfram.

Eftir að Symons var rekinn 8. nóvember sagðist Fulham vona að nýr maður yrði við stjórnvölinn að loknu landsleikjahléi, en þeim mistókst að fá þá Nigel Pearson, Steve Clark, Paul Lambert eða Gary Rowett til liðs við sig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.