28.12.15 - 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Patrick Bamford snýr aftur til Chelsea (Staðfest)

Bamford hefur byrjað tvo leiki á tímabilinu, báðir í deildabikarnum.

Mynd: Getty Images

Patrick Bamford er búinn að enda lánssamning sinn hjá Crystal Palace og er kominn aftur í herbúðir Chelsea.
Bamford er 22 ára gamall og gerði frábæra hluti á láni hjá Middlesbrough á síðasta tímabili, þar sem hann skoraði 17 mörk í 39 deildarleikjum.

Bamford var lánaður til Palace í sumar en hefur aðeins komið við sögu í sex deildarleikjum hjá félaginu.
„Þetta var minn síðasti leikur fyrir Palace. Ef ég á að vera heiðarlegur þá hefur þetta verið hræðilegt. Það vill enginn sitja bara á bekknum án þess að spila,\" sagði Bamford.
„Þetta var mín ákvörðun. Stjórinn hefur ekki einu sinni talað við mig eftir að ég tilkynnti þetta.\"
Það verður áhugavert að sjá hvort Guus Hiddink, stjóri Chelsea út tímabilið, sé reiðubúinn til að gefa Bamford tækifæri, en liðið þurfti að nota Eden Hazard frammi gegn Manchester United vegna tíðra meiðsla sóknarmanna félagsins.