28.12.15 - 11:30
Arnar Geir Halldórsson
Thomas Schaaf tekinn við Hannover (Staðfest)

Nýr stjóri Hannove

Mynd: Getty Images

Nýr stjóri Hannove

Mynd: Getty Images

Þýska úrvalsdeildarliðið Hannover réð Thomas Schaaf í starf knattspyrnustjóra félagsins í dag.
Schaaf tekur við af Michael Frontzeck sem sagði starfi sínu lausu þegar vetrarfrí hófst í Bundesligunni.
Hinn 54 ára gamli Schaaf þekkir þýska boltann vel en hann stýrði Werder Bremen í fjórtán ár og stýrði liðinu til sigurs í Bundesligunni árið 2004.
Síðast stýrði hann liði Eintracht Frankfurt.
Samningur Schaaf við Hannover nær til ársins 2017 en liðið er í miklum vandræðum í deildinni, í næstneðsta sæti með stigi meira en botnlið Hoffenheim.