Fotbolti.net
28.12.21 - 13:35
Elvar Geir Magnússon

Ferran Torres til Barcelona (Staðfest)

Ferran Torres.

Ferran Torres.

Canon

Mynd: EPA

Spænski landsliðsmaðurinn Ferran Torres hefur yfirgefið Manchester City og gengið í raðir Barcelona. Þessi 21 árs leikmaður var hjá City í sextán mánuði og skoraði sextán mörk í 43 leikjum.

Sóknarmaðurinn ungi hefur skrifað undir samning við Barcelona til júní 2027 en samningurinn er með riftunarákvæði upp á einn milljarð evra. Kaupverð er ekki gefið upp en samkvæmt BBC er það talið vera 46,3 milljónir punda.

Torres hjálpaði City að vinna Englandsmeistaratitilinn og enska deildabikarinn á síðasta tímabili. Á þessu tímabili hefur hann verið mikið frá vegna meiðsla sem hann hlaut í landsliðsverkefni með Spáni.
„Ferran má vera stoltur af því sem hann hefur afrekað hér hjá Manchester City," segir Txiki Begiristain, yfirmaður fótboltamála hjá City.

„Síðasta tímabil var hans fyrsta í nýju landi en hann aðlagaðist vel, vann vel fyrir liðið og skoraði mörk sem hjálpaði okkur að vinna bikara. Það hefur verið gaman að starfa með honum og við óskum honum alls hins besta."

Ferran Torres til Barcelona (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.