Fotbolti.net
28.12.21 - 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Jorge Jesus ekki lengur þjálfari Benfica (Staðfest)

Jorge Jesus.

Jorge Jesus.

Canon

Mynd: Getty Images

Jorge Jesus er ekki lengur þjálfari Benfica í Portúgal. Nelson Veríssimo, sem þjálfar B-liðið, mun stýra aðalliðinu tímabundið.
Þetta var sameiginleg ákvörðun og þarf Benfica ekki að borga þjálfaranum út samninginn.

Tímabilið hefur ekki verið stórkostlegt fyrir Benfica, sem situr í þriðja sæti portúgölsku úrvalsdeildarinnar. Liðið komst áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar en tapaði gegn Porto í portúgalska bikarnum. Það er talið að leikmannahópurinn hafi ekki verið sérlega ánægður með Jesus.

Jesus hefur verið orðaður við endurkomu til Flamengo í Brasilíu. Jesus stýrði Flamengo frá 2019 til 2020 og er í miklum metum þar.

Það eru sögur um að Andrea Pirlo komi til greina í starf stjóra Benfica.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.