Fotbolti.net
28.12.21 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Rafinha lánaður til Real Sociedad (Staðfest)

Rafinha.

Rafinha.

Canon

Mynd: EPA

Paris Saint-Germain hefur tilkynnt að miðjumaðurinn Rafinha muni spila seinni hluta tímabilsins hjá spænska félaginu Real Sociedad.
Rafinha fór í læknisskoðun í gær og voru félagaskiptin í kjölfarið staðfest.

Hinn 28 ára gamli Rafinha hefur verið í eitt og hálft ár hjá PSG en ekki verið í stóru hlutverki. Hann kemur til með að fá fleiri tækifæri hjá Sociedad.

Rafinha þekkir vel til á Spáni; hann er uppalinn hjá Barcelona og steig sín fyrstu skref þar. Hann hefur einnig spilað með Celta Vigo og Inter á sínum ferli.

Rafinha er bróðir Thiago, miðjumanns Liverpool.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.