Fotbolti.net
28.12.21 - 11:08
Fótbolti.net

Sindri Björns aftur heim í Leikni (Staðfest)

Sindri Björnsson og Stefán Páll Magnússon framkvæmdastjóri Leiknis.

Sindri Björnsson og Stefán Páll Magnússon framkvæmdastjóri Leiknis.

Canon

Mynd: Leiknir

Miðjumaðurinn Sindri Björnsson er snúinn aftur í uppeldisfélag sitt, Leikni í Breiðholti. Hann skrifaði undir tveggja ára samning.

Sindri er 26 ára gamall og hefur síðustu tvö ár spilað fyrir Grindavík í Lengjudeildinni. Hann varð Íslandsmeistari með Val 2017 og 2018.

Sindri á að baki leiki fyrir öll yngri landslið Íslands og var lykilmaður í Leiknisliðinu sem vann 1. deildina 2014 og þegar liðið spilaði sitt fyrsta tímabil í efstu deild árið á eftir.
Hann er annar leikmaðurinn úr því liði sem snýr aftur heim til Leiknis í vetur en áður hafði miðvörðurinn Óttar Bjarni Guðmundsson komið frá ÍA.

Leiknir hafnaði í áttunda sæti efstu deildar á árinu sem er að líða en þetta er í fyrsta sinn sem liðið nær að halda sér í deild þeirra bestu.
Sindri hefur leikið fyrir Grindavík undanfarin tvö ár.

Sindri hefur leikið fyrir Grindavík undanfarin tvö ár.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.