29.01.13 - 12:20
Magnús Már Einarsson
Anton Ferdinand til Bursaspor (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Tyrkneska félagið Bursaspor hefur fengið Anton Ferdinand á láni frá Queens Park Rangers. Lánssamningurinn gildir fram á sumar en þá verður framhaldið skoðað.
Ferdinand kom til QPR frá Sunderland árið 2011 en á þessu tímabili hefur hann ekki átt fast sæti í byrjunarliðinu.
Ferdinand verður ekki eini Englendingurinn í liði Buraspor því markvörðurinn Scott Carson er einnig á mála hjá félaginu.
Harry Redknapp, stjóri QPR, stendur í ströngu í dag en hann er að fá nýja leikmenn og senda aðra í burtu.
Auk Ferdinand þá hefur framherjinn Rob Hulse verið lánaður til Milwall út þetta tímabil.

Heimild: BBC