29.01.13 - 10:06
Magnús Már Einarsson
Aron Jóhannsson í AZ Alkmaar (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
AZ Alkmaar hefur keypt framherjann Aron Jóhannsson frá danska félaginu AGF.
Aron skrifaði í morgun undir fjögurra og hálfs árs samning við AZ eða til sumarsins 2017.

,,Ég er mjög ánægður með að allt sé formlega frágengið og ég get ekki beðið eftir að hitta hópinn,\" sagði Aron á heimasíðu AZ en hann mun leika í treyju númer 20 hjá félaginu.
,,Ég hef heyrt marga góða hluti um AZ frá Íslendingum sem hafa spilað hér. Markmið mitt hjá AZ er að verða betri leikmaður og skora fullt af mörkum.\"
Hinn 22 ára gamli Aron er uppalinn hjá Fjölni en hann gekk til liðs við AGF árið 2010.
Á þessu tímabili hefur hann raðað inn mörkunum með AGF en Aron er í augnablikinu markahæstur í dönsku úrvalsdeildinni ásamt Andreas Cornelius.
Hjá AZ Alkmaar verður hann liðsfélagi Jóhanns Bergs Guðmundssonar sem spilaði á dögunum sinn 100. leik með hollenska félaginu.

Heimild: Heimasíða AZ Alkmaar