Fotbolti.net
29.01.13 - 20:00
Sebastían Sævarsson Meyer

Lewis Holtby kominn til Tottenham (Staðfest)

Lewis Holtby á sinni fyrst æfingu með Tottenham í dag.

Lewis Holtby á sinni fyrst æfingu með Tottenham í dag.

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Lewis Holtby er genginn í raðir Tottenham frá Schalke, fimm mánuðum fyrr en áætlað var en í dag mætti þýski miðjumaðurinn á sína fyrstu æfingu með Tottenham.

Tottenham greiðir um 1,5 milljón punda fyrir Holtby en hann var áður búinn að samþykkja að skrifa undir hjá Tottenham þegar samningur hans hjá Schalke myndi renna út eftir tímabilið.
Holtby var þó ákveðinn í að taka skrefið í enska boltann hálfu ári fyrr þó svo að Schalke spili í Meistaradeildinni. Hjá Tottenham á hann að hjálpa liðinu að tryggja sér sæti í sömu keppni.

,,Það er æðislegt að vera hér. Ég get ekki beðið eftir að spila fyrir félagið og ég er spenntur fyrir tímabilinu,\" sagði hinn 22 ára Holtby.

,,Aðstaðan er sú besta sem ég hef séð. Ég er stoltur að vera hérna, þetta er stórt félag sem er alltaf vaxandi.\"

,,Ég spilaði í Meistaradeildinni með Schalke, en ég vildi koma hingað núna. Um leið og ég sá aðstöðuna, fólkið og talaði við Andre vissi ég að ég vildi vera hér. Ég er í skýjunum.\"


Þar með hefur Gylfi Þór Sigurðsson fengið meiri samkeppni í liðinu en Holtby gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir Tottenham á morgun gegn Norwich í ensku úrvalsdeildinni.

Holtby mun spila í treyju númer 23 hjá Tottenham.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.