Fotbolti.net
29.01.13 - 09:00
Magnús Már Einarsson

Mauro Boselli til Palermo á láni (Staðfest)

Mauro Boselli til Palermo á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ítalska félagið Palermo hefur fengið framherjann Mauro Boselli á láni frá Wigan út tímabilið.

Palermo hefur einnig tryggt sér forkaupsrétt á leikmanninum næsta sumar.
Boselli kom til Wigan frá Estudiantes á sex milljónir punda árið 2010 og varð um leið dýrasti leikmaður félagsins frá upphafi.

Boselli hefur aftur á móti ekki náð að festa sig í sessi í byrjunarliðinu og á síðasta tímabili var hann lánaður til Genoa.

Í vetur hefur Boselli leikið tólf leiki með Wigan í öllum keppnum og skorað fjögur mörk.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.