Fotbolti.net
29.01.13 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Pogatetz til West Ham (Staðfest)

Pogatetz til West Ham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Austurríski varnarmaðurinn Emmanuel Pogatetz er kominn til West Ham á láni frá þýska félaginu Wolfsburg og verður þar út tímabilið.

Pogatetz getur bæði spilað sem bakvörður og miðvörður og á yfir 50 landsleiki og 5 tímabil á Englandi að baki.
,,Mér líður mjög vel með að vera kominn hingað og ég er mjög spenntur fyrir að spila fyrir West Ham,\" sagði Pogatetz við opinbera vefsíðu West Ham.

,,Ég hlakka til að spila fyrir félagið og hjálpa því að ná góðum úrslitum. Ég mun gera mitt besta til að spila vel og ég vona að ég geti átt þátt í því að West Ham nái markmiðum sínum á tímabilinu.

,,Ég sakna þess að spila á Englandi og stuðningsmenn West Ham eru ástríðufullir og hefðbundnir stuðningsmenn.\"

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.