Fotbolti.net
29.01.14 - 17:37
Elvar Geir Magnússon

Luuk de Jong til Newcastle (Staðfest)

Luuk de Jong að leika sér á ströndinni í Ísrael.

Luuk de Jong að leika sér á ströndinni í Ísrael.

Canon

Mynd: Getty Images

Sóknarmaðurinn Luuk de Jong er kominn í raðir Newcastle United á lánssamningi frá Borussia Monchengladbach. Þessi 23 ára Hollendingur hefur ekki staðið undir væntingum í Þýskalandi síðan hann kom frá Twente 2012.
Hann skoraði 25 mörk í 31 leik í hollensku úrvalsdeildinni áður en hann var keyptur til Þýskalands.

De Jong hefur ekki byrjað einn einasta leik í þýsku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð en fær nú tækifæri til að sýna sig og sanna í enska boltanum.

„Ég hef góða tilfinningu fyrir þessum skiptum. Ég er mjög hrifinn af leikvangnum og æfingasvæðinu og allir sem ég hef hitt hafa boðið mig velkominn,\" segir De Jong.

„Þetta hefur verið erfitt tímabil fyrir mig en hingað er ég kominn til að spila leiki og vil vera mikilvægur fyrir liðið, skora mörk og leggja upp. Ég er fullur tilhlökkunar.\"

De Jong mun fá treyju númer 18 og er löglegur fyrir grannaslag gegn Sunderland á laugardag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.