29.01.14 - 22:46
Brynjar Ingi Erluson
Næsti Zlatan til AS Roma (Staðfest)

Valmir Berisha

Mynd: Getty Images

Valmir Berisha

Mynd: Getty Images
Ítalska stórliðið AS Roma hefur fest kaup á Valmir Berisha frá Halmstad í Svíþjóð en þetta tilkynnti félagið í kvöld.
Berisha, sem er 17 ára gamall, þykir einn efnilegasti framherji heims um þessar mundir en hann sýndi og sannaði hvað hann gat á HM U17 í sumar.
Hann var markahæsti maður mótsins með 7 mörk í liði sænska landsliðsins en fjölmörg lið voru á höttunum á eftir honum.
Stærstu lið Evrópu vildu fá hann í sínar raðir en þar á meðal voru Liverpool, AC Milan, Ajax, Borussia Dortmund og Glasgow Celtic. Þá hafnaði hann samningstilboði frá Sunderland en ítalska stórliðið Roma tilkynnti þó í kvöld að samningar væru í höfn við Berisha.
Hann hefur samið við félagið en hann gerði fimm ára samning. Það er því ljóst að framtíðin er björt í liði Roma sem situr í öðru sæti deildarinnar, sex stigum á eftir ítalska meistaraliðinu Juventus.