29.01.14 - 16:42
Magnús Már Einarsson
Skúli Jón til Gefle (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Skúli Jón Friðgeirsson hefur gengið til liðs við sænska félagið Gefle á láni frá Elfsborg en samningurinn gildir þar til 30. júní.
Skúli Jón kom til Elfsborg í mars 2012 eftir að hafa verið lykilmaður í Íslandsmeistaraliði KR árið áður.

Meiðsli settu strik í reikninginn hjá Skúla árið 2012 og í fyrra var hann úti í kuldanum hjá Elfsborg. Hann mun nú fara til Gefle í von um meiri spiltíma.
,,Þetta er mjög fínt. Ég verð að byrja að spila aftur og ég hef jákvæða tilfinningu fyrir Gefle sem félagi. Þess fyrir utan verð ég áfram í Allsvenskunni, það er mjög jákvætt,\" sagði Skúli Jón.
,,Þetta er lausn sem hentar öllum aðilum,\" sagði Janne Mian þjálfari Elfsborg.
Gefle endaði í tólfta sæti í sænsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili en Elfsborg endaði í því sjötta eftir að hafa orðið meistari árið áður.