Fotbolti.net
29.01.16 - 21:32
Arnar Geir Halldórsson

Alexandre Pato til Chelsea (Staðfest)

Mættur í enska boltann

Mættur í enska boltann

Canon

Mynd: Getty Images

Englandsmeistarar Chelsea hafa loksins staðfest félagaskipti Alexandre Pato til félagsins.
Félagaskiptin hafa legið í loftinu undanfarna daga en hann var kynntur til leiks hjá félaginu nú rétt í þessu.

Pato kemur til félagsins að láni frá Corinthians en þessi 26 ára gamli framherji hefur áður leikið í Evrópu þegar hann lék með AC Milan.

Hann á 27 landsleiki að baki fyrir Brasilíu og hefur skorað í þeim 10 mörk.

Chelsea leikur gegn MK Dons í enska bikarnum á sunnudag og gæti Pato leikið sinn fyrsta leik fyrir félagið þá.

We're delighted to announce the loan signing of Alexandre Pato... https://t.co/KRVK7JGwhN #CFC pic.twitter.com/y4d3ohwjdQ

— Chelsea FC (@ChelseaFC) January 29, 2016

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.