29.01.16 - 21:15
Arnar Geir Halldórsson
Ervin Zukanovic til Roma (Staðfest)

Ervin Zukanovic heilsar upp á Herra Roma

Mynd: Getty Images

Bosníski varnarmaðurinn Ervin Zukanovic hefur fært sig um set í ítalska boltanum og er genginn til liðs við AS Roma.
Zukanovic kemur til Roma frá Sampdoria eftir stutta dvöl hjá síðarnefnda liðinu en hann var keyptur til Sampdoria síðasta sumar.
Þessi 28 ára gamli leikmaður verður fyrst um sinn að láni hjá Roma sem getur svo keypt hann endanlega næsta sumar fyrir 3 milljónir evra.
Hann hefur leikið 16 leiki fyrir Sampdoria í vetur en liðið er í harðri fallbaráttu á meðan Roma er að keppa um efstu sætin.