Fotbolti.net
29.01.16 - 20:43
Arnar Geir Halldórsson

Paloschi til Swansea (Staðfest)

Paloschi til Swansea (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Alberto Paloschi er genginn til liðs við enska úrvalsdeildarliðið Swansea en hann kemur til félagsins frá Chievo á Ítalíu.
Þessi nýjasti samherji Gylfa Þórs Sigurðssonar gerir þriggja og hálfs árs samning við Swansea sem situr í 15.sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Kaupverðið er talið vera um 8 milljónir punda og mun Paloschi leika í treyju númer níu.

Paloschi þekkir vel til Francesco Guidolin, stjóra Swansea en þeir unnu saman hjá Parma á sínum tíma.

Þessi 26 ára gamli sóknarmaður hefur skorað 8 mörk í Serie A í vetur.

CONFIRMED: #Swans complete the signing of striker Alberto Paloschi for an undisclosed fee - https://t.co/mG5mYeJwgy pic.twitter.com/F69QVHCy42

— Swansea City AFC (@SwansOfficial) January 29, 2016

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.