Fotbolti.net
29.01.16 - 21:25
Arnar Geir Halldórsson

Sandro til WBA (Staðfest)

Pulis að versla

Pulis að versla

Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíski miðjumaðurinn Sandro mun klára tímabilið með enska úrvalsdeildarliðinu West Bromwich Albion.
Þessi 26 ára gamli leikmaður verður á láni frá enska B-deildarliðinu QPR út þetta tímabil en WBA hefur forkaupsrétt að lánstímanum loknum.

Sandro hefur leikið 17 landsleiki fyrir Brasilíu en WBA verður þriðja liðið sem hann leikur fyrir á Englandi eftir að hafa komið til Tottenham frá Internacional í heimalandinu árið 2010.

Sandro mun leika í treyju númer 30 hjá WBA sem situr í 14.sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

TRANSFER NEWS: Sandro has completed his six month loan move from @QPRFC. https://t.co/JpW7zqHqCq pic.twitter.com/Mc0qwXWZEd

— West Bromwich Albion (@WBAFCofficial) January 29, 2016

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.